
„Ég tel að við höfum sýnt það, Skagfirðingar, að með miklum samtakamætti er allt hægt. Við hlökkum til að taka á móti gestum áþetta glæsilega landsmótssvæði, tökum fagnandi á móti öllum með sól í hjarta,“ segir Jónína Stefánsdóttir, formaður stjórnar Gullhyls, félags í eigu hestamannafélagsins Skagfirðings sem sér um rekstur og umsýslu Landsmóts hestamanna sem haldið verður á Hólum í Hjaltadal í lok júní.